Sérfræðiþjónusta fyrir tilkynningarskylda aðila

Gríptu til Varna áður en eftirlitið kemur í heimsókn

Varna er sérhæft ráðgjafarfyrirtæki á sviði varna gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Við aðstoðum tilkynningarskylda aðila við að uppfylla kröfur laga nr. 140/2018 m.a. með skjölum, fræðslu, úttektum og ráðgjöf.

Af hverju Varna?
25+ ár
Yfir 25 ára samanlögð reynsla á sviði peningaþvættisvarna og regluvörslu.
Þekking
Íslensk og alþjóðleg sérþekking á sviði peningaþvættisvarna og regluvörslu.
Traust
Fagleg ráðgjöf byggð á reynslu úr íslensku atvinnulífi.
Fletta niður
Hvers vegna Varna?

Fjórar mikilvægar staðreyndir

Ríkisskattstjóri hefur hert eftirlit með tilkynningarskyldum aðilum. Þeir sem bregðast við tímanlega standa betur að vígi — þeir sem bíða taka meiri áhættu.

1
📈

Ríkisskattstjóri hefur hert eftirlitið

Úttektir og viðurlög gagnvart tilkynningarskyldum aðilum hafa aukist. Þróunin er skýr og mikilvægt er að vera undirbúinn.

2
⚠️

Ríkisskattstjóri er að sekta

Sektir vegna ófullnægjandi varna gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka geta verið verulegar. Góður undirbúningur kostar mun minna en misheppnuð úttekt.

3
🛡️

Traust, fagmennska og öryggi

Við bjóðum heildstæða þjónustu: skjöl, fræðslu, úttektir, ráðgjöf o.fl. Markmiðið er að þú getir byggt á traustum vörnum og verið vel undirbúin/n fyrir eftirlit.

4
⏱️

Gríptu til Varna — núna

Þeir sem undirbúa sig tímanlega standast frekar úttektir. Ekki bíða eftir bréfi og jafnvel sekt frá ríkisskattstjóra til að hefja vinnuna.

Þjónustuframboð

Allt sem þú þarft á einum stað

Hvort sem aðilar eru að byrja frá grunni eða þurfa aðstoð í kjölfar úttektar Ríkisskattstjóra þá býður Varna upp á sérsniðna þjónustu fyrir alla aðila.

📄

Skjalapakki

Áhættumat, stefnur og verkferlar — tilbúið til notkunar og sérsniðið að þínum geira og starfsemi.

Fast verð
🔍

Gatagreining

Skipulögð yfirferð á skjölum, kerfum og ferlum með hliðsjón af lagakröfum — ásamt niðurstöðum og úrbótaáætlun.

Verð eftir umfangi
✅

Sjálfstæð úttekt

Varna kemur inn sem óháður þriðji aðili, fer yfir skjöl, ferla, kerfi og þekkingu starfsmanna og skilar ítarlegri skýrslu.

Verð eftir umfangi
🎓

Þjálfun og fræðsla

Fræðsla á staðnum, netnámskeið og sérsniðin námskeið, meðal annars vegna endurnýjunar verðbréfaréttinda.

Fast verð
💬

Ráðgjöf og lögfræðiþjónusta

Uppfærsla skjala, lögfræðileg ráðgjöf, aðstoð við andmæli og yfirferð á skýrslum eftirlitsaðila.

Verð eftir umfangi
Markhópur

Aðstoð við tilkynningarskylda aðila sem falla undir eftirlit Ríkisskattstjóra

Samkvæmt lögum nr. 140/2018 þurfa tilteknir aðilar að uppfylla kröfur um varnir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Varna sérhæfir sig í þjónustu við þennan hóp — þar sem sértæk þekking á sviðinu skiptir miklu máli.

🧭

Leið A — Frumkvæðisviðskiptavinur

Þú vilt hafa málin í lagi áður en ríkisskattstjóri kemur

1Gatagreining á skjölum og ferlum
2Kynning á niðurstöðum
3Úrbótaáætlun og framkvæmd
4Þjálfun starfsmanna
🚨

Leið B — Viðbrögð eftir úttekt ríkisskattstjóra

Þú hefur fengið skýrslu með athugasemdum

1Varna fer yfir skýrslu ríkisskattstjóra
2Ráðgjöf um andmæli
3Úrbætur vegna athugasemda
4Áframhaldandi stuðningur

Mikilvægt: Ríkisskattstjóri hefur aukið úttektir og viðurlög gagnvart tilkynningarskyldum aðilum. Margir litlir og meðalstórir tilkynningarskyldir aðilar hafa ekki sérþekkingu innanhúss á sviðinu. Varna kemur inn sem traustur fagaðili — og léttir þeirri byrði af fyrirtækinu.

Teymið

Sérfræðingar sem þú getur treyst

Samanlögð 25 ára reynsla af vörnum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, lögfræði, tækni og rekstri.

Nína
Nína
Lögfræðingur & Eigandi

Nína er lögfræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og hefur jafnframt lokið diplómunámi í alþjóðasamskiptum frá Háskóla Íslands og fyrirtækjalögfræði frá Háskólanum á Bifröst.

AML/CFTGDPRAlþjóðasamskipti
Hjördís
Hjördís
Lögfræðingur & Eigandi

Hjördís er lögfræðingur frá Háskólanum á Bifröst og hefur meira en 12 ára reynslu af vörnum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

AML/CFTCAMSFATF
Brynjar
Brynjar
Tæknistjóri & Eigandi

Brynjar er tölvunarfræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og hefur meira en áratugs reynslu af hugbúnaðarþróun.

Fjártækni Framendi Notendaupplifun
Hafðu samband

Ertu tilbúin/n að grípa til Varna?

Við bjóðum upp á ókeypis fyrsta samtal þar sem við metum stöðuna og gefum þér skýra mynd af því hvað þarf að gera. Traust, fagmennska og öryggi er leiðarljósið í allri okkar vinnu.

varna@varna.is